Með hitasótt við lyklaborðið

Stundum ber við að blaðafréttir eru þannig skrifaðar að lesandinn óttast að skrifarinn sé mikið veikur, jafnvel með óráði. Slíkar áhyggjur vakna tíðum við lestur Fréttablaðsins en Moggi á einnig sína víxlspretti samanber gullfréttina frá Tonga.

Hvar ætli að hann sé núna þessi ,,eldri maður sem sést á myndinni”? Vonandi hefur hann ekki lent í deiglunni.

mbl.is Dularfullt tanngull á Tonga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Landlega

Það er komin skíta bræla, eins gott að koma sér í land. Nú er upplagt að taka rúnt um eyjuna á Toyota og drekka lýsi.

Haukur Brynjólfsson

mbl.is Eyjaflotinn kominn í höfn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki á verksviði embættismanna

Embættismennirni Gylfi og Már ættu endilega að halda sig utan við pólitísk úrlausnarefni. Þeir hafa ekki verið kjörnir til slíkra verka. Nú má gera sér vonir um að Icesave-málinu verið lent í samvinnu allra flokka á þinginu. Það er hin eina ásættanlega lausn á málinu. Umskiptin urðu þegar forsetinn tók til sinna ráða og hafnaði undirskrift. Hann steig líka fram og talar nú máli Íslendinga á erlendum vettvangi. Hann talar enga tæpitungu enda má þegar sjá árangur af  aðkomu hans að málinu. Slíkan talsmann hefur okkur svo sárlega vantað alla þessa ömurlegu ,,Icesave-tíð". Vonandi hafa menn nú vit á að hverfa frá þeirri ,,lausn" sem sem kúin var í gegn um þingið með 3ja atkvæða meirihluta og er arfaslæm.

Að þessir tveir umboðslausu embættismenn leggist í vörn fyrir það klúður verður ekki þolað.

Haukur Brynjólfsson

Ekki ákvörðunarefni embættismanna

mbl.is Gylfi: Stjórnin frá ef Icesave fellur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stórfrétt

Já, þetta er sko frétt um árangur af dugnaði Alþingismanna sem luku 2. umræðu um Icsave. Við lokaafgreiðslu málsins hækkar gengi krónunnar alveg áreiðanlega um heilt prósent.

Haukur Brynjólfsson

mbl.is Krónan styrktist um 0,11%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aurar í ríkissjóð

Þetta eru góðar fréttir, svona umfjöllun ætti að auðvelda okkur að selja bústaðinn.

Haukur Brynjólfsson

mbl.is Athyglisverð hönnun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Glæpaverk

Því hefur verið lýst hvernig sprengjum var ausið yfir sofandi íbúðahverfi í Bagdad  með venjulegum stríðsafleiðingum fyrir almenna borgara: limlestingum og dauða. Einnig hvernig vírnetum var varpað yfir rafdreyfikerfin til að slá út rafmagni og gera þannig óvirkar dælur í fráveitukerfi borgar á láréttu landi. Þannig mátti enn auka á hörmungar almennra borgara og byrla þeim taugaveiki og fleiri sóttir ef vel tækist til.

Það er svo yfirgengileg að tveir íslenskir ráðherrar skyldu sækja fast að fá inngöngu í þann morðhundaklúbb sem fyrir þessum glæpaverkum stóð, að það er ekki einu sinni hægt að skemmta sér við brandara um utanríkisráðherrann sem opinberaði fíflsku sína með þvaðri um fundin gereyðingarvopn.

Haukur Brynjólfsson

Glæpaverk

Því hefur verið lýst hvernig sprengjum var ausið yfir sofandi íbúðahverfi í Bagdad  með venjulegum stríðsafleiðingum fyrir almenna borgara. Einnig hvernig vírnetum var varpað yfir rafdreyfikerfin til að slá út rafmagni og gera þannig óvirkar dælur í fráveitukerfi borgar á láréttu landi. Þannig mátti enn auka á hörmungar almennra borgara og byrla þeim taugaveiki og fleiri sóttir ef vel tækist til.

Það er svo yfirgengileg að tveir íslenskir ráðherrar skyldu sækja fast að fá inngöngu í þann morðhundaklúbb sem fyrir þessum glæpaverkum stóð, að það er ekki einu sinni hægt að skemmta sér við brandara um utanríkisráðherrann sem opinberaði fíflsku sína með þvaðri um fundin gereyðingarvopn.

Haukur Brynjólfsson

Hinir trúgjörnu

Þetta vissu allir nema Davíð og Halldór sem fengu að vera með í glæpnum. 

Haukur Brynjólfsson

mbl.is Vissu að Saddam ætti líklega ekki nothæf efnavopn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Auðæfi landsins

Undanfarið hafa komið fram dómsdagsspá  þ.e. að virkjanlega orka á landinu sé að verða fullnýtt. Það er þvættingur. Vissulega fækkar möguleikum á stórum vatnsaflsvirkjunum en jarðvarminn er færiband sem gengur stöðugt. Orkugjafinn er bráðið berg sem stígur úr möttli jarðar upp í jarðskorpuna og hitar þar berg og vatn. Að tala um geyma þessi verðmæti fyrir komandi kynslóðir er rökleysa. Hitann undir Kerlingarfjöllum og umhverfi Torfajökuls þurfum við að virkja fyrr en síðar. Þar eru okkar miklu auðæfi og þau ber að nýta.  Alþingi getur bæði friðlýst og aflétt friðlýsingum.

Haukur Brynjólfsson

mbl.is Torfajökulssvæðið hefur hæst verndargildi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Þjóðarskömm.

Höfundur

Haukur Brynjólfsson
Haukur Brynjólfsson
Að tala um gjafakvótann er ekkert bull.Þótt margir sem nú starfa í sjávarútvegi hafi keypt sínar veiðiheimildir þá hafa þeir einmitt keypt þær af mönnum sem fengu þessa verðmætu sameign þjóðarinnar gefins. Undanfarna mánuði hefur verð á leigukvóta í þorski verið um 190 kr/kg en þorskverð á markaði um 280 kr/kg. Sjómaður sem kaupir slíka veiðiheimild hefur þannig um 90kr/kg fyrir að sækja fiskinn á miðin og til þess að greiða kostnað við bát og veiðarfæri. Kvóta,,eigandinn" getur setið á kontórnum og tekið sínar 190 krónur af hverju kílói sem sjómaðurinn landar. Þannig er kvótabraskið. Þessi þáttur kerfisins er þjóðarskömm sem við verðum að komast út úr. Það er vel hægt að stjórna fiskveiðum án þessa fyrirkomulags. Þá er höfuðatriði að gleyma því ekki að þóðin öll á nýtingarréttinn á fiskimiðunum.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.5.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband