Auðæfi landsins

Undanfarið hafa komið fram dómsdagsspá  þ.e. að virkjanlega orka á landinu sé að verða fullnýtt. Það er þvættingur. Vissulega fækkar möguleikum á stórum vatnsaflsvirkjunum en jarðvarminn er færiband sem gengur stöðugt. Orkugjafinn er bráðið berg sem stígur úr möttli jarðar upp í jarðskorpuna og hitar þar berg og vatn. Að tala um geyma þessi verðmæti fyrir komandi kynslóðir er rökleysa. Hitann undir Kerlingarfjöllum og umhverfi Torfajökuls þurfum við að virkja fyrr en síðar. Þar eru okkar miklu auðæfi og þau ber að nýta.  Alþingi getur bæði friðlýst og aflétt friðlýsingum.

Haukur Brynjólfsson


mbl.is Torfajökulssvæðið hefur hæst verndargildi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Þjóðarskömm.

Höfundur

Haukur Brynjólfsson
Haukur Brynjólfsson
Að tala um gjafakvótann er ekkert bull.Þótt margir sem nú starfa í sjávarútvegi hafi keypt sínar veiðiheimildir þá hafa þeir einmitt keypt þær af mönnum sem fengu þessa verðmætu sameign þjóðarinnar gefins. Undanfarna mánuði hefur verð á leigukvóta í þorski verið um 190 kr/kg en þorskverð á markaði um 280 kr/kg. Sjómaður sem kaupir slíka veiðiheimild hefur þannig um 90kr/kg fyrir að sækja fiskinn á miðin og til þess að greiða kostnað við bát og veiðarfæri. Kvóta,,eigandinn" getur setið á kontórnum og tekið sínar 190 krónur af hverju kílói sem sjómaðurinn landar. Þannig er kvótabraskið. Þessi þáttur kerfisins er þjóðarskömm sem við verðum að komast út úr. Það er vel hægt að stjórna fiskveiðum án þessa fyrirkomulags. Þá er höfuðatriði að gleyma því ekki að þóðin öll á nýtingarréttinn á fiskimiðunum.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband