Glæpaverk

Því hefur verið lýst hvernig sprengjum var ausið yfir sofandi íbúðahverfi í Bagdad  með venjulegum stríðsafleiðingum fyrir almenna borgara. Einnig hvernig vírnetum var varpað yfir rafdreyfikerfin til að slá út rafmagni og gera þannig óvirkar dælur í fráveitukerfi borgar á láréttu landi. Þannig mátti enn auka á hörmungar almennra borgara og byrla þeim taugaveiki og fleiri sóttir ef vel tækist til.

 

Það er svo yfirgengileg að tveir íslenskir ráðherrar skyldu sækja fast að fá inngöngu í þann morðhundaklúbb sem fyrir þessum glæpaverkum stóð, að það er ekki einu sinni hægt að skemmta sér við brandara um utanríkisráðherrann sem opinberaði fíflsku sína með þvaðri um fundin gereyðingarvopn.

Haukur Brynjólfsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Þjóðarskömm.

Höfundur

Haukur Brynjólfsson
Haukur Brynjólfsson
Að tala um gjafakvótann er ekkert bull.Þótt margir sem nú starfa í sjávarútvegi hafi keypt sínar veiðiheimildir þá hafa þeir einmitt keypt þær af mönnum sem fengu þessa verðmætu sameign þjóðarinnar gefins. Undanfarna mánuði hefur verð á leigukvóta í þorski verið um 190 kr/kg en þorskverð á markaði um 280 kr/kg. Sjómaður sem kaupir slíka veiðiheimild hefur þannig um 90kr/kg fyrir að sækja fiskinn á miðin og til þess að greiða kostnað við bát og veiðarfæri. Kvóta,,eigandinn" getur setið á kontórnum og tekið sínar 190 krónur af hverju kílói sem sjómaðurinn landar. Þannig er kvótabraskið. Þessi þáttur kerfisins er þjóðarskömm sem við verðum að komast út úr. Það er vel hægt að stjórna fiskveiðum án þessa fyrirkomulags. Þá er höfuðatriði að gleyma því ekki að þóðin öll á nýtingarréttinn á fiskimiðunum.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband