Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
13.11.2009 | 15:08
Nýr skattstofn
Það mætti ætla að stjórnvöld - skattvöld - hefðu fundið nýjan skattstofn í olíu og bensíni. Svo er þó ekki eins og allir vita og miðað við verð á þessum nauðsynjum, eldsneyti á heimilisbílinn, er það með fullkomnum ólíkindum að enn skuli ákveðið að leggja þar á meiri gjöld. Eins og ávalt þá mun hækkunin koma harðast niður á þeim heimilum sem þegar eru hart leikin fjárhagslega.
Haukur Brynjólfsson
Sérstakur olíuskattur settur á | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
15.10.2009 | 17:13
Neyðarbúnaður í vögnunum
Þessi frétt gefur tilefni til að spyrja yfirstjórn strætisvagnanna hvernig öryggi farþega er tryggt í vögnunum í því tilvilki að eldur komi upp og stýringar á hurðum verði óvirkar þannig að ekki sé hægt að opna þær. Í flestum strætisvögnum hér má sjá festingar fyrir hamra sem ætlaðir er til þess að fólk geti brotið sér leið út um glugga vagnanna í neyðartilvikum. Vandinn er bara sá að hamrarnir hafa verið fjarlægðir úr festingunum. Hvers vegna er það ?
Fyrir löngu síðan kom ég þar að sem að almenningsvagn hafði brunnið að hluta til. Þetta leit ekkert mjög illa út við fyrstu sýn, það var búið að slökkva í vagninum og hann var ekki í rúst. Samt létust þarna tólf eldri borgarar, farþegar í vagninum, þeir höfðu ekki komist út því ekki var hægt að opna hurðirnar. Það varð einmitt niðurstaða rannsóknar á þessu slysi að við eldsvoðann hefði stýringar á hurðunum strax orðið óvirkar.
Þessi atburður varð erlendis. E.t.v. getur slíkt gerst hér. Eða hvað ? Sem farþegi SVR velti ég því stundum fyrir mér enda er varla meira en eitt ár síðan sagt var frá áþekku slysi í Þýskalandi þar sem farþegar létust í brennandi almenningsvagni sem þeir komust ekki út úr. Haukur Brynjólfsson
Strætisvagn í ljósum logum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.10.2009 | 16:02
Óvænt tíðindi
Þetta er undarleg frétt. Ekki er svo langt síðan rætt var um að það, enn einu sinni, að skýrslan kæmi út þ. 1. nóvember. Jafnframt mátti skilja orð formanns nefndarinnar á þann veg að skýrslan væri ,,svört" og að þing og þjóð þyrftu að búa sig undir sérlega slæm tíðindi. Ekki orð um nauðsynlega frestun eða stafla af stafla af óuskoðuðum gögnum. Rúv sagði frá því fyrr í dag, að þingið myndi undirbúa móttöku skýrslunnar með sérstakri lagasetningu. Þar á að kveða á um hvernig farið verði með skýrsluna og hverjum verði veittur aðgangur að efni hennar. Vegna þessa vil ég minna á að uppi er krafa um Gagnsæi. Þetta er ekki tískuorð þótt stjórnmálamenn séu í óðaönn að gjaldfella orðið. Það höfðar til kröfunnar um ný vinnubrögð á þingi og meðal embættismanna. Fólk úr öllum flokkum mun fylgjast grant með þessu máli; ætli stjórnmála og embættismenn nú að taka sig til og fela óþægilegan sannleika þá trúi ég því að grasrót allra stjórnmálaflokka, og þjóðin almenn muni bregðast við slíku með viðeignad hætti.
Haukur Brynjólfsson
Rætt við yfir 300 manns | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.10.2009 | 10:22
Vín og brauð ?
Kannske væri ráð að fá séra Baldur til að taka þessa þrjóta til altaris. Varla getur það talist rasismi eða útlendingahatur að nefna slíkt.
Haukur Brynjólfsson
Ekki lát á afbrotum í farbanni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
25.9.2009 | 16:13
Montstofa í monthúsi
Ég legg til að fjölmiðlastofu verði fengið aðsetur í gestastofu Vatnajökulsþjóðgarðs. Í biksvartri kreppunni er verið að byggja monthús fyrir einhver hundruð milljóna austur á Skriðuklaustri. Þar á að vera svokölluð gestastofa. Slíkt monthús myndi hæfa þessu umrædda fyrirbæri vel.
Haukur Brynjólfsson
Fjölmiðlastofa hafi eftirlit | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Þjóðarskömm.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar