1.10.2014 | 18:47
Kínversk vörugæði?
Mögulegt eiturefni í Loom fylgihlutum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
24.9.2014 | 11:03
Gjaldeyrishöft?
Ekki dýrara en að reka hesthús með tveimur hestum. Skrítið dæmi því munurinn er m.a. sá að ekki þarf að leggja út gjaldeyri fyrir hestunum. Eru ekki gjaldeyrishöft á Íslandi? Er það ekki svo að mönnum er neitað um gjaldeyri til að standa við tryggingasamninga erlendis og greiða iðgjöld vegna líftrygginga? Undir gjaldeyrishöftum þarf væntanlega að velja og hafna. Til grundvallar hlýtur þá að liggja einhverskonar mat á þörf fyrir tiltekinn innflutning. Ekki það að ég sé neinn talsmaður gjaldeyrishafta, en það er samstaða um að slíkt fyrirkomulag sé ill nauðsyn.
Nú virðist sem sagt liggja fyrir, að þótt gjaldeyrisyfirvöld á Íslandi telji óþarfa að einstaklingar fái keyptan galdeyri til að standa við greiðslur af erlendum tryggingasamningum, Þá telji sömu yfirvöld í þörf á að flytja inn tveggja sæta bíl með 620 hestafla vél - fyrir 240 þús.+ Evrur !
Ef maður vissi ekki að í kompaníi íslenskra stjórnmála- fjármála og embættismanna er sameinað meira efnahagsvit en þekkist í öðrum heimshlutum, þá myndi maður halda að þetta væri einhver bölvuð vitleysa.
620 hestafla tryllitæki í Reykjavík | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2.4.2013 | 18:28
Þau munu ekki ráða - sem betur fer.
Ekki frekari niðurskurður eða skattahækkanir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
22.11.2012 | 12:36
Ruglfrétt.
Enn ein ruglfréttin skrifuð af þekkingarleysi á umfjöllunarefninu. Landið er fullt af hálfsjálfvirkum skotvopnum. Undanfarin tuttugu til þrjátíu ár hefur verið flutt inn mikið magn af hálfsjálfvirkum haglabyssum cal 12.Má mikið vera ef þetta eru ekki algengustu veiðivopnin á Íslandi í dag. Það sem lögreglan er að vara við, og hefði þá átt að koma fram í fréttinni, er sennilega innfluttingur á hálfsjálfvirkum rifflum, sem er óheimill.
Haukur Brynjólfsson
Með ólíkindum að slíkt verði heimilt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
6.1.2012 | 11:43
Nóg í bili?
Við höfum á undanförnum árum komið okkur upp mörgum, og voandi merkum opinberum stofnunum. Þar eru hundruð háskólamenntaðra fræðinga, sem launaðir eru af almannafé, en virðast þó, sem sumir a.m.k., telja að almenning varði ekkert um hvað þeir eru að gera. Ég myndi vilja gera meira en skerpa upplýsingaskyldu um náttúruvá. Ég vildi að gerð yrði úttekt á opinberum stofnunum, ekki síst þeim sem mesta fjölmiðlaumfjöllun hafa fengið á undanförnum mánuðum.Metin yrði þörfin fyrir þessar stofnanir, mannahald þeirra og hverju þær skila í raun til samfélagsins. Sennilega kæmi þá í ljós að við höfun nú þegar menntað nægjanlega marga umhverfisfræðinga, umhverfisstjórnunarfræðinga og fleiri fræðinga fyrir næstu árin. Það er einungis takmarkaður fjöldi sem getur fengið vinnu við að eyða lúpínu, svo dæmi sé tekið, og mér virðist að búið sé að fullmanna deildirnar sem sjá um að rexa í ferðamönnum.
Sem aftur merkti að fólk sem vill menntast á þessu sviðum þarf að gera ráð fyrir að skapa sér vinnu á eigin spítur; ekki pláss á jötunni í bili.
Ólína: Skerpa þarf skyldu til að upplýsa um umhverfisvá | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
28.5.2011 | 21:55
Samkvæmt staðli.
Spánn er í ESB svo að liðið hlýtur að vera lamið samkvæmt löggiltum evrópustöðlum.
Haukur Brynjólfsson
Mótmælendur miskunnarlaust barðir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
19.2.2011 | 00:21
Undarlegt
Skipstjórinn feilreiknaði kúrs | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
22.12.2010 | 14:49
Hálfsagt
Þetta er illa skrifuð frétt, sem ekki er nýtt: stór þáttur í ógæfu Mörlandans um þessar mundir er ræfildómur og óheiðarleiki okkar handónýtu fjölmiðla - án undantekningar. Hálfsannleikur og hagsmunagæsla út og suður er þeirra einkenni -allra ! Ef markmiðið með fréttinni hefði verið að veita almenningi góðar upplýsingar þá hefðu fyrirtæki og vörur verið listuð upp þannig að allur samanburður hefði verið augljós og valið þar með auðvelt. En það mátti greinilega ekki.
Haukur Brynjólfsson.
Allt að 122% verðmunur á hamborgarhryggnum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
19.11.2010 | 22:53
Utanbæjarfólk
Eru ekki íbúarnir í umræddu húsi örugglega utanbæjarfólk ?
Haukur Brynjólfsson
Fundu fíkniefni á Sauðárkróki | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Þjóðarskömm.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 126
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar